12268/03

WyrokETPCz2009-07-23ECLI:CE:ECHR:2009:0723JUD001226803

Analiza orzeczenia

Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.

Zagadnienie prawne
Czy skazanie wydawcy czasopisma za naruszenie prywatności piosenkarza poprzez publikację artykułu i zdjęć naruszyło prawo do wolności wyrażania opinii (art. 10 Konwencji)?
Ratio decidendi
Trybunał uznał, że sądy krajowe nie wyważyły należycie prawa skarżącego do wolności wyrażania opinii (art. 10) z prawem piosenkarza do prywatności. Podkreślono, że zdjęcia pochodziły z publicznych reklam, a sam piosenkarz ujawnił aspekty swojego życia w autobiografii, co zmniejszyło jego oczekiwanie na ochronę prywatności. Artykuł, choć negatywny, nie zawierał negatywnych komentarzy ani zamiaru zaszkodzenia reputacji, a skarżący nie przekroczył granic wolności prasy w społeczeństwie demokratycznym.
Stan faktyczny
Hachette Filipacchi Associés, francuska firma wydawnicza, opublikowała w czasopiśmie „Ici Paris” artykuł o rzekomych problemach finansowych i ekstrawaganckim stylu życia piosenkarza Johnny'ego Hallydaya. Artykułowi towarzyszyły cztery zdjęcia piosenkarza, w tym z reklam produktów, którym użyczył swojego wizerunku. Johnny Hallyday pozwał wydawcę, twierdząc, że naruszono jego prywatność. Sąd apelacyjny w Wersalu uznał naruszenie i nakazał skarżącemu zapłatę 20 000 EUR odszkodowania oraz kosztów sądowych.
Rozstrzygnięcie
Trybunał jednogłośnie stwierdził naruszenie art. 10 Konwencji. Zasądził skarżącemu 26 000 EUR zadośćuczynienia i 10 000 EUR na pokrycie kosztów.

Pełny tekst orzeczenia

©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf   Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201   for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.   Hachette Filipacchi Associés („Ici Paris“) gegn Frakklandi Dómur frá 23. júlí 2009 Mál nr. 12268/03 10. gr. Tjáningarfrelsi Friðhelgi einkalífs. Fjölmiðlar. Birting ljósmynda.   1. Málsatvik Kærandi, Hachette Filipacchi Associés er franskt útgáfufyrirtæki, með skráð aðsetur í Levallois-Perret í Frakklandi. Þann 13. nóvember 1996 birtist í tímaritinu Ici Paris, sem kærandi gefur út, grein sem fjallaði m.a. um ætluð fjárhagsvandamál söngvarans Johnny Hallyday og öfgakenndan lífsstíl hans. Með greininni fylgdu fjórar myndir af söngvaranum, m.a. þar sem hann stóð á sviði, ásamt auglýsingum fyrir vörur sem hann hafði lagt nafn sitt og ímynd við. Þann 4. mars 1997 höfðaði söngvarinn mál gegn útgáfufyrirtækinu og krafðist þess að viðurkennt yrði að það hefði með umfjöllun sinni brotið gegn friðhelgi einkalífs hans. Kröfum hans var vísað frá dómi, þar sem aðeins hefði verið minnst á eignir söngvarans, fjárhagslegar ráðstafanir hans væru á allra vitorði og hann hefði sjálfur margsinnis greint frá, m.a. í sjálfsævisögu sinni. Málinu var síðar vísað til áfrýjunardómstóls Versala, sem taldi að birting myndanna hefði ekki verið í samræmi við tilgang þeirra auglýsinga sem söngvarinn hefði lagt ímynd sína við og að þær upplýsingar sem fram komu í greininni brytu gegn friðhelgi einkalífs hans. Var kærandi dæmdur til að greiða söngvaranum 20.000 evrur í skaðabætur ásamt málskostnaði. Áfrýjun kæranda náði ekki fram að ganga.   2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum Kæran Kærandi hélt því fram að niðurstaða dómstóla hefði brotið gegn rétti hans til tjáningarfrelsis samkvæmt 10. gr. sáttmálans.   Niðurstaða Dómstóllinn féllst ekki á þá röksemd ríkisins að þar sem um einkaréttarlegan ágreining væri að ræða félli hann utan lögsögu hans. Taldi dómstóllinn að niðurstaða málsins hefði augljóslega falið í sér takmörkun á rétti kæranda til tjáningarfrelsis. Mælt hafði verið fyrir um takmörkunina í lögum og hún stefnt að lögmætu markmiði, þ.e. að vernda rétt söngvarans til friðhelgi einkalífs síns. Var því hlutverk dómstólsins að skera úr um þau grundvallarréttindi sem vógust á, þ.e. rétt kæranda til tjáningarfrelsis og rétt söngvarans til friðhelgi einkalífs síns. Dómstóllinn lagði sérstaka áherslu á þá staðreynd að ljósmyndirnar, sem birtar voru með greininni, hefðu verið fengnar úr auglýsingum með söngvaranum. Væri því málið aðgreinanlegt frá öðrum þeim málum, þar sem ljósmyndir hefðu verið fengnar með umdeilanlegum aðferðum eða brotið gegn friðhelgi einkalífs hins umrædda einstaklings. Jafnframt lagði dómstóllinn áherslu á að söngvarinn hefði í sjálfsævisögu sinni sjálfur greint frá íburðarmiklum og kostnaðarsömum lífsstíl sínum. Hefði það dregið úr þeirri vernd einkalífs hans sem hann átti annars rétt á. Við mat á ábyrgð kæranda hefði innlendum dómstólum borið að taka þá staðreynd til greina. Að lokum tók dómstóllinn fram, að þó svo greinin hefði verið neikvæð fyrir söngvarann, hefði ekki verið um að ræða neikvæð ummæli eða ásetning kæranda til að skaða orðspor hans. Hefði því kærandi ekki farið yfir takmörk þess frelsis, sem fjölmiðlar njóta í lýðræðislegu þjóðfélagi í umfjöllun sinni. Þar sem ekki hefði verið gætt sanngjarns jafnvægis milli þeirra réttinda sem rákust á við skerðingu tjáningarfrelsis kæranda, komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að brotið hefði verið gegn rétti kæranda samkvæmt 10. gr. sáttmálans. Í samræmi við 41. gr. sáttmálans voru kæranda dæmdar 26.000 evrur í skaðabætur og 10.000 evrur vegna málskostnaðar.

© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 14.07.2026. · Źródło