30742/02

WyrokETPCz2006-09-26ECLI:CE:ECHR:2006:0926JUD003074202

Analiza orzeczenia

Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.

Zagadnienie prawne
Czy odmowa przeprowadzenia ustnej rozprawy w postępowaniu dotyczącym oceny stopnia niepełnosprawności, opartej na dokumentacji medycznej, narusza prawo do rzetelnego procesu z art. 6 ust. 1 Konwencji?
Ratio decidendi
Trybunał podkreślił, że zasada jawności postępowania, obejmująca ustność, nie jest absolutna i w szczególnych okolicznościach można od niej odstąpić. Stwierdził, że w sprawach o charakterze technicznym, takich jak ocena niepełnosprawności, gdzie rozstrzygnięcie opiera się głównie na pisemnych opiniach medycznych i dokumentacji, postępowanie pisemne może być wystarczające i bardziej efektywne. Trybunał uznał, że w niniejszej sprawie nie było potrzeby ustnego przesłuchania skarżącego ani świadków, ponieważ wszystkie istotne informacje były zawarte w dokumentacji medycznej, a osobiste okoliczności skarżącego nie miały wpływu na techniczną ocenę niepełnosprawności.
Stan faktyczny
Skarżący, Jani Matti Kalevi Elo, obywatel Finlandii, doznał wypadku przy pracy w październiku 1996 roku, co spowodowało urazy pięt i nóg. W czerwcu 2000 roku towarzystwo ubezpieczeniowe oceniło jego niepełnosprawność na 3. stopień, podczas gdy skarżący domagał się 7. stopnia, przedstawiając zaświadczenia lekarskie. Zarówno komisja ds. niepełnosprawności, jak i sąd ubezpieczeniowy odmówiły mu ustnej rozprawy, argumentując, że postępowanie jest z natury pisemne, a ocena niepełnosprawności ma charakter techniczny i opiera się na dokumentacji medycznej.
Rozstrzygnięcie
Trybunał stwierdza brak naruszenia art. 6 ust. 1 Konwencji.

Pełny tekst orzeczenia

©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf   Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201   for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.   Elo gegn Finnlandi Dómur frá 26. september 2006 Mál nr. 30742/02 6 gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi Réttur til munnlegrar málsmeðferðar.   1. Málsatvik Kærandi, Jani Matti Kalevi Elo, er finnskur ríkisborgari, fæddur 1974 og búsettur í Rauma í Finnlandi. Hann starfaði sem plötusmiður en varð fyrir vinnuslysi í október 1996, og meiddist á hælum og fótleggjum. Í júní 2000 flokkaði tryggingafélagið, sem hafði greitt kæranda bætur vegna slyssins, örorku hans sem 3. stigs örorku. Kærandi kvartaði til örorkunefndar og hélt því fram að bæturnar ættu að miðast við 7. stigs örorku. Þessu til stuðnings framvísaði hann læknisvottorðum. Þá fór kærandi fram á að málið væri rekið munnlega fyrir nefndinni en þeirri beiðni var hafnað, með þeim rökum að málsmeðferð fyrir nefndinni væri að jafnaði skrifleg. Kærandi kærði ákvörðun nefndarinnar um að meta skyldi örorku hans sem 3. stigs örorku til dómstóls í tryggingamálum. Þar óskaði hann enn eftir því að málsmeðferð færi munnlega fram, enda taldi hann slíkt nauðsynlegt þar sem meiðsli hans væru sérstaks eðlis og féllu utan hefðbundins örorkustigamats. Því var hafnað á grundvelli þeirrar meginreglu að mál fyrir dómnum væru flutt skriflega, auk þess sem ekki þótti þörf á munnlegum málflutningi eða vitnisburði vegna þessa tiltekna máls. Mat á örorku væri tæknilegs eðlis og byggt á læknisfræðilegum upplýsingum en ekki persónulegri reynslu kæranda. Því væri engin þörf á að hann kæmi fyrir dóminn.   2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum Kæran Kærandi byggði á því að réttur hans til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi hefði verið brotinn með því að honum var neitað um að flytja mál sitt munnlega fyrir dómi og leiða fram vitni. Studdist kærandi við 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.   Niðurstaða Dómstóllinn tók fram að reglan um opinbera málsmeðferð fæli almennt í sér að málsmeðferð skyldi fara fram munnlega, en sú regla væri þó ekki fortakslaus. Það var álit dómstólsins að við sérstakar aðstæður væri heimilt að hafna beiðni aðila um munnlega málsmeðferð. Því næst tók dómstóllinn til skoðunar hvort réttlætanlegt hefði verið að málsmeðferð væri eingöngu skrifleg í þessu tilviki. Það færi mjög eftir eðli þess máls sem væri lagt fyrir dómstóla hvort munnleg málsmeðferð væri nauðsynleg. Litið var til þess að ágreiningur vegna örorkubóta væri fremur tæknilegur og niðurstaðan iðulega byggð á skriflegu áliti lækna. Því gæti skilað betri árangri að slík mál væru eingöngu rekin skriflega, auk þess sem slíkt stuðlaði að aukinni hagkvæmni og skilvirkni. Álitamálið var því hvort munnlegur framburður kæranda og lækna hans hefði leitt eitthvað í ljós, sem ekki kom fram í skriflegum gögnum. Þar sem ekki væri ætlast til að persónulegir hagir öryrkja breyttu nokkru um örorkumat þeirra, væri eingöngu byggt á læknisfræðilegum gögnum og vottorðum. Mat úrskurðarnefndarinnar og dómstólsins byggðist því á fyrirliggjandi skriflegum gögnum og ekki varð séð að munnlegur vitnisburður hefði breytt nokkru um niðurstöðu málsins. Það var álit dómstólsins að örorkunefndin og tryggingadómstóllinn hefðu getað leyst úr málinu á fullnægjandi hátt á grundvelli þeirra gagna sem kærandi og læknar hans höfðu lagt fram. Með hliðsjón af þessu taldi dómstóllinn kringumstæður með þeim hætti að réttlætanlegt hefði verið að málsmeðferð væri eingöngu skrifleg. Það var því niðurstaða dómstólsins að ekki hefði verið brotið gegn rétti kæranda samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sáttmálans.

© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 13.07.2026. · Źródło