34651/04
WyrokETPCz2007-11-27ECLI:CE:ECHR:2007:1127JUD003465104
Analiza orzeczenia
Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.
Zagadnienie prawne
Czy niewystarczające i niezależne śledztwo w sprawie śmierci lub ataków, w których podejrzewano udział policji, naruszyło prawo do życia (art. 2) i prawo do skutecznego środka odwoławczego (art. 13) Konwencji?Ratio decidendi
Trybunał uznał, że państwo ma pozytywny obowiązek przeprowadzenia skutecznego i niezależnego śledztwa w przypadku śmierci lub poważnych ataków, zwłaszcza gdy istnieją wiarygodne zarzuty dotyczące udziału funkcjonariuszy państwowych. W niniejszej sprawie początkowe śledztwo policyjne z 1999 roku nie spełniało wymogu niezależności, ponieważ było prowadzone przez samą policję w odniesieniu do zarzutów dotyczących jej własnych pracowników. Późniejsze etapy śledztwa, po reformach strukturalnych w policji, zostały uznane za wystarczająco niezależne i skuteczne, jednak początkowe uchybienia doprowadziły do stwierdzenia naruszenia art. 2.Stan faktyczny
Pięciu skarżących z Irlandii Północnej to bliscy krewni osób, które zginęły w atakach w latach 1975-1976, lub sami byli ofiarami tych ataków, w kontekście konfliktu między separatystami a unionistami. W niektórych sprawach funkcjonariusze policji zostali skazani, w innych nie postawiono nikomu zarzutów. W 1999 roku pojawiły się poważne zarzuty dotyczące współpracy policji z unionistami w związku z tymi atakami. Policja wszczęła śledztwo, które jednak nie przyniosło rezultatów i zostało zakończone bez formalnych wniosków.Rozstrzygnięcie
Trybunał stwierdził naruszenie art. 2 Konwencji w odniesieniu do początkowego etapu śledztwa z 1999 roku. Nie stwierdzono naruszenia art. 2 w odniesieniu do późniejszego etapu śledztwa po 2001 roku. Trybunał uznał, że nie ma potrzeby odrębnego badania zarzutu naruszenia art. 13 Konwencji. Skarżącym zasądzono zadośćuczynienie za szkody niemajątkowe (5 000 euro dla większości, 51 000 euro dla jednego skarżącego) oraz zwrot kosztów.Pełny tekst orzeczenia
© Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Brecknell , McCartney, Mcgrath, O'dowd, Reavy gegn Bretlandi
Dómur frá 27. nóvember 2007
Mál nr. 32457, 34575, 34651, 34622 og 34640/04
2. gr. Réttur til lífs
13. gr. Réttur til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns
Mannsbani vegna valdbeitingar. Rannsókn lögreglu.
1. Málsatvik
Kærendur eru fimm, búsettir á Norður-Írlandi og fæddir á árunum 1922 til 1951. Þeir eru allir nánir ættingjar manna sem létust í árásum, eða urðu sjálfir fyrir árásum, á árunum 1975 og 1976 í átökum aðskilnaðarsinna og sambandssinna á Norður-Írlandi. Í málum tveggja kærendanna voru lögreglumenn dæmdir fyrir aðild sína að umræddum árásum. Í tveimur málum var hins vegar enginn sóttur til saka og í einu málanna ákvað lögreglan að ákæra ekki tvo menn sem höfðu keyrt árásarmennina á vettvang árásarinnar.
Árið 1999 setti nafngreindur maður fram ýmsar ásakanir um samstarf lögreglunnar og sambandssinna, meðal annars vegna framangreindra árása. Lögreglan hóf rannsókn á þessum ásökunum og tók meðal annars skýrslur af sjö mönnum árið 2001 sem voru taldir geta gefið upplýsingar. Rannsóknin bar ekki árangur og var hætt án formlegrar niðurstöðu.
2. Meðferð málanna hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur töldu að rannsókn á upplýsingum um að lögreglan og sambandssinnar bæru ábyrgð á dauða ættingja þeirra og/eða árásum á kærendur hefði verið ófullnægjandi. Með því hefði verið brotið gegn réttindum þeirra samkvæmt 2. gr. og 13. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Að því er varðaði 2. gr. taldi dómstóllinn að hún legði skyldu á aðildarríki að láta fara fram viðhlítandi rannsókn á dauða manna, sem létust með saknæmum eða grunsamlegum hætti, enda þótt ekki væri hægt að gera óraunhæfar kröfur til lögreglunnar í þessum efnum. Þegar fram kæmu vísbendingar eða sönnunargögn vegna óupplýsts máls bæri lögreglunni þó að hefja rannsókn. Nánara mat á því hvort rannsókn teldist fullnægjandi að öllu leyti (út frá skilvirkni, sjálfstæði, málshraða, upplýsingagjöf til aðstandenda og ytra eftirliti) réðist af aðstæðum hverju sinni.
Dómstóllinn taldi að ásakanirnar sem fram höfðu komið hefðu verið alvarlegar, heimildir umrædds manns hefðu virst traustar og þess eðlis að yfirvöldum hefði verið skylt að rannsaka þær. Rannsókn lögreglunnar í þessu máli gæti ekki talist sjálfstæð í skilningi sáttmálans, enda hefði hún beinst að upplýsingum sem vörðuðu starfsmenn lögreglunnar sjálfar. Rannsókn málsins á frumstigum þess árið 1999 var af þessum ástæðum einróma talin fela í sér brot á 2. gr. sáttmálans.
Eftir að umfangsmiklar skipulagsbreytingar voru gerðar á lögreglunni árið 2001 var hins vegar talið að rannsóknin hefði farið fram hjá nýjum og hlutlausum aðila. Ekki var talið að málshraði hefði verið ófullnægjandi eða brotið hefði verið gegn 2. gr. með öðrum hætti.
Með vísan til þessarar niðurstöðu var ekki talin ástæða til að fjalla sjálfstætt um ætlað brot gegn 13. gr. sáttmálans. Kærendum voru dæmdar miskabætur (5.000 evrur að frátöldum einum kæranda sem voru dæmdar 51.000 evrur) og málskostnaður.
© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 13.07.2026. · Źródło