42396/04
WyrokETPCz2010-02-18ECLI:CE:ECHR:2010:0218JUD004239604
Analiza orzeczenia
Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.
Zagadnienie prawne
Czy skazanie redaktorki czasopisma za zniesławienie urzędnika skarbowego, w związku z publikacją artykułu zawierającego poważne oskarżenia, stanowiło naruszenie prawa do wolności wyrażania opinii z art. 10 Konwencji?Ratio decidendi
Trybunał uznał, że ingerencja w wolność wyrażania opinii skarżącej była zgodna z prawem i dążyła do uzasadnionych celów, tj. ochrony reputacji i praw innych osób. Podkreślono, że media mają obowiązek weryfikacji faktów, zwłaszcza gdy istnieje ryzyko naruszenia dobrego imienia konkretnych osób. Skarżąca nie udowodniła prawdziwości zarzutów ani działania w dobrej wierze. Trybunał zwrócił uwagę na powagę oskarżeń oraz na fakt, że artykuł dotyczył sporu między osobą publiczną a urzędnikiem skarbowym, a nie ogólnych informacji podatkowych. Stwierdzono, że funkcjonariusze publiczni potrzebują zaufania publicznego do wykonywania swoich obowiązków i mogą wymagać większej ochrony przed zniesławiającymi wypowiedziami dotyczącymi ich pracy. W konsekwencji, skazanie i nałożona grzywna nie były nieproporcjonalne, a argumentacja sądów krajowych była trafna i wystarczająca.Stan faktyczny
Skarżąca, Benoite Taffin, była redaktorką czasopisma "Tous contribuables" wydawanego przez organizację Contribuables Associés. W 2001 roku opublikowano artykuł zawierający wywiad z GL, znanym prezenterem telewizyjnym, który oskarżył urzędniczkę skarbową prowadzącą jego kontrolę o fałszowanie danych i niekompetencję. Urzędniczka wniosła pozew o zniesławienie, w wyniku czego skarżąca i GL zostali skazani, a skarżąca ukarana grzywną w wysokości 1500 euro oraz zobowiązana do zapłaty 1 euro odszkodowania i 1200 euro kosztów sądowych. Odwołania skarżącej zostały odrzucone przez sądy krajowe.Rozstrzygnięcie
Trybunał stwierdza brak naruszenia art. 10 Konwencji.Pełny tekst orzeczenia
© Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf
Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201
for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.
Taffin et Contribuables Associés gegn Frakklandi
Dómur frá 18. febrúar 2010
Mál nr. 42396/04
10. gr. Tjáningarfrelsi
Ærumeiðingar. Opinberir starfsmenn.
1. Málsatvik
Kærendur eru Benoite Taffin, franskur ríkisborgari fædd árið 1948 og búsett í París, og samtökin Contribuables Associés. Benoite var ritstjóri tímaritsins Tous contribuables sem samtökin gáfu út. Árið 2001 var birt grein í tímaritinu um skattrannsókn á málefnum GL sem er þekktur sjónvarpsmaður og framleiðandi í Frakklandi. Í greininni var viðtal við GL en í því nafngreindi hann starfsmanninn sem stýrt hefði rannsókninni, sakaði hana um fölsun gagna og sagði hana m.a. hafa það að markmiði að „negla hann, sama hvað það kostaði“. Einnig sagði hann hana algerlega óábyrga og að hún hefði ekki einungis gert mistök í rannsókninni heldur væru alvarlegir annmarkar á vinnubrögðum hennar.
Í kjölfarið höfðaði fyrrgreindur starfsmaður skattsins mál á hendur GL og kærendum fyrir ærumeiðandi ummæli um opinberan starfsmann. Þann 9. apríl árið 2002 voru kærendur sakfelldir. Í niðurstöðunni var vísað til þess að í greininni hefði verið fjallað um ágalla á störfum opinbers starfsmanns sem var að sinna starfsskyldum sínum. Þetta hefði verið gert í andstöðu við allar laga- og siðareglur og hafði haft það eina markmið að GL gæti náð sér niður á henni. Þetta hefði skaðað æru starfsmannsins og orðspor. Í niðurstöðunni var vísað til þess að hvorki hefði verið sannað hvort eitthvað væri hæft í ásökunum GL né í fullyrðingum Benoite um að hún hefði verið í góðri trú. Kærendum var gert að greiða sekt að andvirði 1.500 evrur hvorum og sameiginlega 1 evru í skaðabætur og 1.200 evrur í málskostnað. Benoite og GL áfrýjuðu en eftir andlát hins síðarnefnda var málið hvað hann varðar dregið til baka. Í október árið 2003 staðfesti áfrýjunardómstóll í París niðurstöðu undirréttar og gerði Benoite að greiða 500 evrur í áfrýjunarkostnað. Æðsti dómstóll vísað áfrýjunarmáli hennar frá.
2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum
Kæran
Kærendur héldu því fram að sakfelling þeirra fyrir ærumeiðandi ummæli bryti í bága við tjáningarfrelsi þeirra samkvæmt 10. gr. sáttmálans.
Niðurstaða
Þar sem samtökin höfðu ekki áfrýjað sakfellingunni til æðra dómstigs var það niðurstaða dómstólsins að þau hefðu ekki leitað til hlítar leiðréttingar í Frakklandi. Af þeim sökum var kæra þeirra ekki talin tæk til meðferðar. Það var því einungis sá hluti málsins er varðaði Benoite Taffin sem tekinn var til skoðunar (hér eftir nefnd kærandi).
Dómstóllinn vísaði til þess að takmörkun tjáningarfrelsis kæranda hefði byggst á lögum og að með henni hefði verið stefnt að lögmætum markmiðum, þ.e. að vernda mannorð og réttindi annarra. Hann vísaði til þess að önnur skilyrði fyrir takmörkun væru að hún væri málinu bæði viðkomandi og fullnægjandi og að meðalhófs hefði verið gætt til að ná markmiðinu sem stefnt væri að. Dómstóllinn taldi það verkefni sitt að meta hvort svo hefði verið í umræddu máli.
Dómstóllinn ítrekaði að í tjáningarfrelsinu fælust bæði skyldur og ábyrgð fyrir fjölmiðla, jafnvel þó um væri að ræða alvarleg mál sem vörðuðu almenning. Skyldurnar og ábyrgðin væru sérstaklega ríkar þegar hætta væri á að skaða orðspor nafngreindra einstaklinga og gengið væri á réttindi annarra. Sú skylda væri því lögð á fjölmiðla að staðreyna að meginstefnu nákvæmni (eða að minnsta kosti trúverðugleika) yfirlýsinga um staðreyndir sem væru ærumeiðandi um tiltekna einstaklinga. Að sama skapi yrðu þeir að líta til réttar viðkomandi einstaklinga um að teljast saklausir þar til sekt væri sönnuð.
Dómstóllinn gat ekki litið fram hjá því að fyrir innlendum dómstólum hefði kæranda hvorki tekist að sýna fram á að sannindi væru á bak við ásakanirnar á hendur hinum opinbera starfsmanni né heldur að þær hefðu verið settar fram í góðri trú. Dómstóllinn lagði áherslu á hversu alvarlegar ásakanirnar hefðu verið svo og að greinin hefði í raun verið um deilu milli tveggja aðila, þekkts einstaklings annars vegar og opinbers starfsmanns í skattkerfinu hins vegar. Tilgangur greinarinnar hefði hins vegar ekki verið sá að veita almennar upplýsingar um skattamál. Dómstóllinn lagði enn fremur áherslu á að til að geta sinnt skyldum sínu þyrftu opinberir starfsmenn að njóta almenns trausts án ótilhlýðilegrar truflunar. Af þeim sökum gæti verið nauðsynlegt að veita þeim enn meiri vernd gegn meiðandi ummælum um skyldustörf þeirra.
Með hliðsjón af framangreindu var það mat dómstólsins að sakfelling kæranda og sektin hefðu ekki verið óhófleg með hliðsjón af því markmiði sem stefnt hefði verið að. Það var einnig mat hans að röksemdir franskra dómstóla hefðu bæði verið málinu viðkomandi og fullnægjandi. Af þeim sökum hafði það verið ásættanlegt að stjórnvöld hefðu metið takmörkun á tjáningarfrelsi kæranda nauðsynlega í lýðræðissamfélagi í því skyni að vernda mannorð og réttindi annarra. Það var því einróma niðurstaða dómstólsins að ekki hefði verið brotið í bága við 10. gr. sáttmálans.
© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 13.07.2026. · Źródło