4251/02

WyrokETPCz2005-11-08ECLI:CE:ECHR:2005:1108JUD000425102

Analiza orzeczenia

Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.

Zagadnienie prawne
Czy nakaz rozbiórki nielegalnie wybudowanego magazynu, wydany pomimo uniewinnienia skarżącego od zarzutu karnego dotyczącego budowy, stanowił naruszenie prawa do poszanowania mienia z art. 1 Protokołu nr 1 do Konwencji?
Ratio decidendi
Trybunał uznał, że krajowe sądy nie oparły swojej decyzji o rozbiórce na wątpliwych podstawach. Stwierdził, że po zmianach w przepisach policyjnych skarżący powinien był być świadomy, że jeśli budowa magazynu zostanie uznana za niezgodną z prawem, to jego rozbiórka zostanie nakazana, niezależnie od jego osobistej winy. Celem nakazu rozbiórki było przywrócenie stanu zgodnego z prawem, który istniałby, gdyby przestrzegano przepisów. Trybunał uznał, że nakaz rozbiórki nie naruszył zasady proporcjonalności w świetle tego uzasadnionego celu. Uniewinnienie skarżącego nie mogło zmienić tego wniosku, ponieważ inne rozstrzygnięcie zobowiązywałoby władze krajowe do tolerowania nielegalnych budowli, nawet jeśli własność została przeniesiona na niewinną osobę trzecią.
Stan faktyczny
Skarżący, Benny Saliba, obywatel Malty, nabył na początku lat 70. działkę na Gozo, na której znajdował się już magazyn. Był dwukrotnie oskarżony o prowadzenie prac budowlanych bez wymaganych pozwoleń, przy czym został uniewinniony z pierwszego zarzutu, ale skazany z drugiego, z nakazem zapłaty grzywny i rozbiórki budynku. W 1992 r. sąd apelacyjny uchylił wyrok karny, ale nakazał rozbiórkę magazynu, ponieważ został on zbudowany bez wymaganych pozwoleń, opierając się na przepisach prawa policyjnego. Skarżący bezskutecznie odwoływał się w postępowaniu cywilnym i konstytucyjnym, argumentując, że przepisy zostały zmienione w 1988 r. i że kara nie była przewidywalna dla czynów popełnionych przed tą datą.
Rozstrzygnięcie
Trybunał stwierdził brak naruszenia art. 1 Protokołu nr 1 do Konwencji.

Pełny tekst orzeczenia

©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf   Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201   for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.   Saliba gegn Möltu Dómur frá 8. nóvember 2005 Mál nr. 4251/02 1. gr. 1. viðauka. Friðhelgi eignarréttar Takmarkanir á eignarrétti. Niðurrif byggingar.   1. Málsatvik Kærandi, Benny Saliba, er ríkisborgari Möltu, fæddur 1941 og búsettur á Möltu. Snemma á áttunda áratugnum eignaðist kærandi landspildu í Gozo en þar hafði þá þegar verið reist vörugeymsla. Síðar var kærandi tvisvar ákærður í refsimáli fyrir að hafa staðið fyrir byggingarframkvæmdum á lóðinni án tilskilinna leyfa. Var hann sýknaður af fyrri ákærunni en sakfelldur vegna þeirrar síðari. Var honum gert að greiða sekt og rífa bygginguna niður. Kærandi áfrýjaði dóminum. Í október 1992 ógilti áfrýjunardómstóll refsidóminn en fyrirskipaði þó niðurrif vörugeymslunnar, þar sem hún hefði verið byggð án tilskilinna leyfa. Byggði dómstóllinn á ákvæðum lögreglulaga. Kærandi höfðaði þá einkamál þar sem hann byggði á því að framangreindum lögum hefði verið breytt 6. júní 1988 og að fyrir þann dag hefði ekki verið unnt að beita því refsikennda úrræði að láta rífa niður byggingu væri sakborningur sýknaður. Þá byggði kærandi á því að þar sem hin meinta refsiverða háttsemi var framin fyrir 6. júní 1988 hefði refsingin ekki verið fyrirsjáanleg. Kröfu kæranda var hafnað og áfrýjaði hann þá til stjórnlagadómstóls sem einnig hafnaði kröfunni. Byggði dómstóllinn á því að refsiverð háttsemi hefði átt sér stað og að koma þyrfti aftur á lögmætu ástandi, án tillits til þess hver hefði framið hina refsiverðu háttsemi. Í tilviki kæranda hefði því sú eina leið verið fær að fyrirskipa niðurrif byggingarinnar.   2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum Kæran Kærandi byggði á því að ákvörðun um niðurrif byggingar hans hefði brotið rétt hans skv. 1. gr. 1. viðauka við sáttmálann.   Niðurstaða Dómstóllinn taldi innlenda dómstóla ekki hafa byggt ákvörðun sína um niðurrif byggingarinnar á umdeilanlegum forsendum. Þá taldi dómstóllinn að eftir að breytingar voru gerðar á lögreglulögum hefði kæranda mátt vera ljóst að yrði bygging vörugeymslunnar talin ólögmæt samkvæmt þeim yrði niðurrif hennar fyrirskipað, án tillits til niðurstöðu um sekt hans sjálfs. Dómstóllinn taldi að markmið þess að niðurrif byggingarinnar var fyrirskipað væri það að koma á því lögmæta ástandi sem uppi hefði verið hefði lögum verið fylgt. Bryti dómur um niðurrif byggingarinnar ekki gegn meðalhófsreglu í ljósi þess lögmæta markmiðs sem stefnt væri að. Þótt kærandi hefði sjálfur verið sýknaður gat það að mati dómstólsins ekki breytt þessari niðurstöðu. Önnur niðurstaða væri til þess fallin að skylda innlend yfirvöld til að þola ólögmætar byggingar hefðu eignarráð yfir þeim flust yfir til grandlauss þriðja aðila. Var það niðurstaða dómstólsins að sú takmörkun á eignarrétti sem um ræddi hefði verið lögmæt og ekki falið í sér brot gegn meðalhófsreglu. Því taldi dómstóllinn ekki hafa verið brotið gegn 1. gr. 1. viðauka við sáttmálann. Tveir dómarar skiluðu séráliti.

© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 13.07.2026. · Źródło