60255/00

WyrokETPCz2006-05-09ECLI:CE:ECHR:2006:0509JUD006025500

Analiza orzeczenia

Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.

Zagadnienie prawne
Czy brak skutecznego śledztwa w sprawie śmiertelnego wypadku przy pracy, odmowa dostępu do sądu w celu dochodzenia roszczeń cywilnych oraz brak skutecznego środka odwoławczego naruszyły odpowiednio art. 2, art. 6 ust. 1 i art. 13 Konwencji?
Ratio decidendi
Trybunał uznał, że śledztwo w sprawie śmierci pracownika było nieskuteczne, ponieważ prokuratura nie zapewniła wyjaśnienia wszystkich okoliczności zdarzenia, ignorując zalecenie inspekcji pracy o sporządzeniu opinii biegłego. Było to szczególnie istotne, gdyż krajowe przepisy (art. 115 ustawy o ubezpieczeniach społecznych) uniemożliwiały rodzinie dochodzenie roszczeń cywilnych od pracodawcy. W konsekwencji stwierdzono naruszenie art. 2 Konwencji. Ponadto, brak skutecznego środka odwoławczego w Luksemburgu, który pozwoliłby skarżącym dochodzić zadośćuczynienia po nieskutecznym śledztwie, doprowadził do naruszenia art. 13 Konwencji. Art. 6 ust. 1 Konwencji nie miał zastosowania, gdyż skarżący nie posiadali praw cywilnych w rozumieniu tego artykułu na mocy obowiązujących wówczas przepisów krajowych.
Stan faktyczny
Skarżący to wdowa i dzieci Coimbry Henriquesa, portugalskiego pracownika, który zginął w wypadku przy pracy w Luksemburgu w lutym 1995 roku, gdy podczas prac rozbiórkowych zawaliła się ściana. Wszczęto śledztwo, ale prokuratura umorzyła sprawę w maju 1996 roku, mimo zalecenia inspekcji pracy o sporządzeniu opinii biegłego. Skarżący próbowali ścigać wykonawców za zaniedbanie i dochodzić odszkodowania, ale ich skarga została oddalona przez sąd karny na podstawie art. 115 ustawy o ubezpieczeniach społecznych, który uniemożliwiał ofiarom lub ich potomkom pozywanie pracodawców, chyba że wypadek był celowy.
Rozstrzygnięcie
Trybunał stwierdza naruszenie art. 2 Konwencji. Trybunał stwierdza, że art. 6 ust. 1 Konwencji nie miał zastosowania, a zatem nie doszło do jego naruszenia. Trybunał stwierdza naruszenie art. 13 Konwencji. Trybunał zasądza skarżącym 60 000 euro tytułem zadośćuczynienia za szkody niemajątkowe oraz 12 000 euro tytułem kosztów i wydatków.

Pełny tekst orzeczenia

©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf   Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201   for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.   Pereira Henriques o.fl. gegn Lúxemborg Dómur frá 9. maí 2006 Mál nr. 60255/00 2. gr. Rétturinn til lífs 6. gr. Rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi 13. gr. Rétturinn til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns Vinnuslys. Rannsókn. Aðgangur að dómstólum. Réttindi að einkamálarétti.   1. Málsatvik Kærendur, Maria Cecilia Pereira Henriques (f. 1948), og börn hennar, Christina Maria (f. 1968) og Joao Manual Pereira Henriques (f. 1972), eru portúgalskir ríkisborgarar, og eru þau búsett í Lúxemborg og Tondela í Portúgal. Maria er ekkja Coimbra Henriques, verkamanns sem lést í vinnuslysi í febrúar 1995, en aðrir kærendur eru börn þeirra. Coimbra Henriques var starfsmaður fyrirtækisins G sem vann að niðurrifi byggingar á Boulevard Royal nr. 30 í Lúxemborg. Byggingin hafði verið rifin niður að hluta til í því skyni að auka á stöðugleika aðliggjandi byggingar. Hinn 2. febrúar 1995 var Coimbra ásamt öðrum verkamanni við vinnu á 2. hæð byggingarinnar þegar veggur af 4. hæð hrundi yfir þá með þeim afleiðingum að þeir höfnuðu á jarðhæð. Coimbra lést í slysinu en hinn verkamaðurinn slasaðist alvarlega. Sama dag mætti eftirlitsmaður frá vinnueftirlitinu ásamt lögreglumönnum, rannsóknardómara og fulltrúa ákæruvaldsins á vinnusvæðið. Eftir skýrslutökur undirbjó lögreglan kærur á hendur verktakanum fyrir manndráp af gáleysi ásamt brotum á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Einnig var fyrirskipað að allri vinnu á svæðinu skyldi hætt. Í apríl 1995 lagði vinnueftirlitið svo fram skýrslu til ákæruvaldsins um aðdraganda slyssins og aðstæður á slysstað. Í skýrslunni kom helst fram að samkvæmt framburði ýmissa vitna hefði umræddur veggur verið skoðaður til að kanna stöðugleika hans. Jafnframt hefði ákæruvaldið hafnað tillögu vinnueftirlitsins um að fengin yrði skýrsla sérfræðings um málið. Rannsóknaryfirvöld gátu ekki komist að einróma niðurstöðu um ástæður þess að veggurinn hrundi. Hinn 17. maí 1996 ákvað ákæruvaldið síðan að fella málið niður. Kærendur kröfðust þess fyrir sakadómi að framkvæmdastjórar verktakafyrirtækjanna yrðu sóttir til saka fyrir að valda dauða Coimbra Henriques með því að hafa ekki uppfyllt lágmarkskröfur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Þeir kröfðust jafnframt skaða- og miskabóta vegna þess tjóns sem þau höfðu orðið fyrir. Sakadómur komst að þeirri niðurstöðu að vísa skyldi kæru þeirra frá á grundvelli 115. gr. laga um almannatryggingar en þar kom fram að hvorki fórnarlömb slysa né afkomendur þeirra hefðu kærurétt gagnvart vinnuveitanda nema í tilvikum þar sem slysi hefði verið valdið af ásetningi.   Niðurstaða Mannréttindadómstólsins Kæran Kærendur héldu því fram að engin raunveruleg, skilvirk rannsókn á dauða eiginmanns þeirra og föður hefði verið gerð. Þeir héldu því einnig fram að þeim hefði verið neitað um aðgang að dómstólum á grundvelli 115. gr. laga um almannatryggingar og hefðu ekki haft raunhæf úrræði til að láta skera úr um aðstæður dauða Coimbra Henriques. Með þessu töldu þeir brotið á réttindum sínum sem fólgin væru í 2. gr. um rétt til lífs, rétti til aðgangs að dómstólum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. og rétti til raunhæfs úrræðis samkvæmt 13. gr. sáttmálans.   Niðurstaða dómstólsins Um 2. gr.: Dómstóllinn leit til þess að með því að ákæruvaldið ákvað að líta framhjá tillögu vinnueftirlitsins um að fá skýrslu sérfræðings var komið í veg fyrir að skýrð væru ákveðin atriði sem enn voru óljós eftir frumrannsóknina. Taldi dómstóllinn því að ákæruvaldið hefði ekki tryggt að dánarorsök væri ljós og að þeir sem ábyrgir væru yrðu látnir sæta þeirri ábyrgð. Að mati dómstólsins var það sérstaklega mikilvægt að ákæruvaldið framkvæmdi ítarlega rannsókn þar sem því mátti vera ljóst að aðstandendur hins látna gætu ekki leitað svara né skýringa hjá verktakanum vegna 115. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi þessa taldi dómstóllinn einróma að rannsóknin hefði ekki verið skilvirk í máli þessu og því hefði verið brotið gegn formhluta 2. gr.   Um 1. mgr. 6. gr.: Í ljósi þess að samkvæmt þágildandi lögum töldust kærendur ekki eiga réttindi að einkamálarétti í skilningi 1. mgr. 6. gr. komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að greinin ætti ekki við og hefði því ekki verið brotin.   Um 13. gr.: Þar sem ríkisstjórn Lúxemborgar hafði ekki sýnt fram á að kærendur hefðu haft raunhæft úrræði til að leita réttar síns og bóta í kjölfar hinnar óskilvirku rannsóknar komst dómstóllinn einróma að því að 13. gr. hefði verið brotin. Á grundvelli 41. gr. dæmdi dómstóllinn kærendum 60.000 evrur í miskabætur og 12.000 evrur vegna málskostnaðar. Einn dómari skilaði séráliti.

© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 13.07.2026. · Źródło