64935/01

WyrokETPCz2005-06-07ECLI:CE:ECHR:2005:0607JUD006493501

Analiza orzeczenia

Sekcja wygenerowana przez AI na podstawie treści orzeczenia — nie stanowi cytatu.

Zagadnienie prawne
Czy obawa skarżącego o brak bezstronności sędziego przewodniczącego w jego sprawie karnej, który jednocześnie był stroną w wytoczonym przez skarżącego procesie cywilnym i nałożył na skarżącego grzywnę za obrazę sądu, była obiektywnie uzasadniona, naruszając tym samym prawo do rzetelnego procesu z art. 6 ust. 1 Konwencji?
Ratio decidendi
Trybunał uznał, że obawa skarżącego o brak bezstronności sędziego M.V. była obiektywnie uzasadniona. Sędzia M.V. przewodniczył sprawie karnej skarżącego, podczas gdy jednocześnie toczyła się sprawa cywilna wytoczona przez skarżącego przeciwko M.V. Ponadto, sędzia M.V. nałożył na skarżącego grzywnę za obrazę sądu, interpretując wniosek o wyłączenie jako osobisty atak. Trybunał stwierdził, że w takich okolicznościach sędzia oceniał zachowanie skarżącego z osobistej perspektywy, co podważyło jego bezstronność i naruszyło prawo skarżącego do rzetelnego procesu.
Stan faktyczny
Skarżący, Martin Chmelíř, został skazany na osiem lat więzienia za rabunek i nielegalne posiadanie broni. W trakcie postępowania odwoławczego, w grudniu 1999 r., skarżący złożył wniosek o wyłączenie sędziego przewodniczącego M.V., kwestionując jego bezstronność. W odpowiedzi, w lutym 2000 r., sędzia M.V. nałożył na skarżącego grzywnę w wysokości 1674 EUR za obrazę sądu, uznając jego zarzuty za atak na swoją osobę. W międzyczasie, skarżący wytoczył sędziemu M.V. sprawę cywilną o naruszenie dóbr osobistych, która toczyła się równolegle ze sprawą karną.
Rozstrzygnięcie
Trybunał stwierdził naruszenie art. 6 ust. 1 Konwencji. Stwierdzenie naruszenia stanowiło wystarczające zadośćuczynienie za szkodę niemajątkową. Zasądzono 1000 EUR na pokrycie kosztów i wydatków.

Pełny tekst orzeczenia

©  Translations published on http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/domareifanir_pdf   Permission to re-publish this translation has been granted by http://stofnanir.hi.is/mannrettindastofnun/en/node/201   for the sole purpose of its inclusion in the Court’s database HUDOC.   Chmelíř gegn Tékklandi Dómur frá 7. júní 2005 Mál nr. 64935/01 6. gr. Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi Hæfi dómara í refsimáli.   1. Málsatvik  Kærandi, Martin Chmelíř, er tékkneskur ríkisborgari, fæddur árið 1973. Þann 12. febrúar 1998 var hann handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þann 3. mars 1998 var hann ásamt tveimur meðákærðum sakfelldur fyrir ýmis brot, þar á meðal rán og ólöglegan vopnaburð. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi. Kærandi áfrýjaði málinu. Í desember 1999 óskaði kærandi eftir því að M.V., forseti dómsins, viki sæti þar sem hann hefði áður átt í nánu sambandi við dómarann. Þann 15. febrúar 2000 sektaði M.V. kæranda um fjárhæð sem nemur 1.674 evrum þar sem hann hefði móðgað réttinn með ósönnum ásökunum sem væru ósvífin árás á M.V. og ætlaðar til að tefja gang málsins.  Í millitíðinni, þann 7. febrúar 2000, höfðaði kærandi einkamál á hendur M.V. fyrir brot gegn persónu hans en krafan náði ekki fram að ganga. A, en nnarri kröfu um að M.V. viki sæti var einnig hafnað á þeim grundvelli að hún fæli í sér töf og nýja árás á mannorð dómarans.   2. Meðferð málsins hjá Mannréttindadómstólnum Kæran  Kærandi taldi að réttindi sín skv. 1. mgr. 6. gr. hefðu verið brotin þar sem hlutleysi þeirra dómara sem fóru með mál hans á áfrýjunarstigi hefði ekki verið tryggt.   Niðurstaða  Mannréttindadómstóllinn benti á að þegar kærandi höfðaði málið á hendur M.V. sat M.V. sem dómsformaður í refsimáli gegn honum. Voru málin til meðferðar samtímis í dómskerfinu í meira en sjö mánuði. Af þeirri ástæðu væri ekki hægt að útiloka að kærandi hefði ástæðu til að óttast að M.V. liti á sig sem andstæðing. Ótti kæranda jókst við ákvörðun M.V. um að sekta hann. Dómstóllinn féllst á að innlendir dómstólar hefðu rétt til að beita málsaðila agaviðurlögum. Í þessu máli taldi dómstóllinn hins vegar að það hefði ekki verið hegðun kæranda sem gaf tilefni til sektarinnar heldur það að hann móðgaði dóminn. Þó svo að sú móðgun hefði stafað af árás á dómsforsetann var hegðun kæranda metin af þessum sama dómara út frá hans eigin persónulegu afstöðu þar sem honum fannst hann sérstaklega gerður að skotmarki og móðgaður. Því var talið að hans eigin skynjun, mat á staðreyndum og dómgreind hefði komið til þegar úrskurðað var um hvort dómurinn hefði verið móðgaður í þessu tilviki. Dómstóllinn tók einnig tillit til þess hversu þung refsing var lögð á kæranda, en hann fékk hámarkssekt og var varaður við því að litið yrði á frekari árásir af sama meiði sem lögbrot. Dómstóllinn taldi þessi atriði lýsa sterkum viðbrögðum dómarans við hegðun kæranda.  Undir þessum kringumstæðum taldi dómstóllinn að ótti kæranda um að M.V. væri ekki óvilhallur hefði verið á rökum reistur. Dómurinn komst einróma að þeirri niðurstöðu að réttindi kæranda skv. 1. mgr. 6. gr. hefðu verið brotin.  Talið var niðurstaða dómsins fæli í sér nægilegar miskabætur til kæranda en honum voru einnig dæmdar 1.000 evrur fyrir málskostnaði á grundvelli 41. gr. (Dómurinn er aðeins til á frönsku.)

© Rada Europy / Europejski Trybunał Praw Człowieka, źródło: HUDOC (hudoc.echr.coe.int), pozyskano 14.07.2026. · Źródło